Ađalvalmynd

Atburđarteljari

Betra er seint en aldrei...

06. janúar 2009 klukkan 16:51

Þar sem ég get verið svolítið gleymin þá var staðan bara sú að ég mundi ekki lykilorðið mitt inn á síðuna svo ég gat ekki bloggað:)

Annars er ég bara búin að hafa það ágætt, átti dásamleg jól með börnunum mínum og Gunnari Óla hjá tengdó í Árbót.

Skólinn skemmtilegur. og stelpurnar þar alveg dásamlegar:)

Er með svaka heimþrá og söknuð til barnanna minna....

Er hálfnuð með skólann!!!!!!!!!!

Reyni að vera duglegri héðan í frá að blogga...:)

knús og kossar...

hemmhemm...

11. desember 2008 klukkan 18:33

Vá hvað maður er háður netinu.... Við erum búin að vera netlaus síðan við fluttum og ég er að verða brjáluð á því... Er núna á netinu í gegnum gsm minn í fartölvunni hans Davíðs því ég var að springa úr þörf...:)
Svo þetta verður stutt....

Fór norður síðustu 2 helgar og það var ljúft....
Sólin mín varð 9ára 7.des.....
Það styttist órtúlega í jólafríið.....
Ég verð með Katrínu Von, Garpi Loka, Gunnari Óla og tengdó á aðfangadag.....
Hlakka agalega til að fara svo í risið til ömmu og afa á aðfangadagskvöld, þar er sko gott að vera....
Verð með 4 gullmola um áramótin:) Hversu dásamlegt er það:)

Við Davíð fluttum fyrir 2 vikum og það er bara fínt að vera hér, líður samt oft eins og ég sé útá miðri götu því það er svo mikil umferð hérna.... Sakna þess pínu að vera á Grettisgötunni....

En allavega.... lengra verður það ekki í bili... knús...

ps.Linda mín átti afmæli í gær:) til lukku með það sæta mín:)

Flytja, fara norđur, gaman gaman...:)

26. nóvember 2008 klukkan 20:26
Skamm Frosti!!!  Tongue out

Nóttin í nótt verður væntanlega seinasta nóttin hér á Grettisgötunni og ég kem til með að sakna þess að vera hér....
Við erum að pakka á fullu og erum búin að leigja bíl til að ferja dótið okkar á morgun. Allt smádraslið mitt sem Davíð minn elskar svo mikið;)

Ég er að fara norður á föstudaginn og á flug kl.13 svo ég næ að vera viðstödd þegar Húsvíkingar kveikja ljósin á jólatrénu í bænum:) Mér finnst það æðislegt:)

Svo verður svaka partý á Greifanum á laugardaginn fyrir hana dásamlegu ömmu mína Dísu sem er að verða 80 ára takk fyrir. Sú gamla veit held ég ekki af því svo þetta verður örugglega meiriháttar gaman hjá okkur:)

Tóm hamingja í gangi og bjartsýni.... Þetta reddast er klárlega lífsmottóið mitt:)

Gunnar Óli bauð mér að vera á Sandi um jólin svo það stefnir allt í að við verðum þar með börnin okkar. Hann sagðist bara þurfa að gera extra skammt af sósu ef ég kæmi;) hehehe....
Thelma Líf og Tinna Sól verða á Akureyri hjá Erlu, Gauta og Anítu en ég verð svo með þær yfir áramótin:)
Þannig að ég strax farin að hlakka til jólanna 2009 því þá verða þau öll hjá mér:D:D:D:D:D:D

Jæja best að halda áfram að pakka, er ein í því núna þar sem Davíð minn er aðeins upptekinn í heimsókn þessa stundina;) hehehee....

Elska kvitt btw:)

og ţađ er komiđ blogg....

22. nóvember 2008 klukkan 11:17
Það er ekki nema von að fólk nenni ekki að kvitta þegar ég nenni aldrei að blogga;)

ENNNNN.... allavega þá er voða lítið að frétta af mér. Er í helgarfrí og langar svooooooo að vera fyrir norðan núna:( er að fara næstu helgi svo ég verð að bíða bara, ekkert sérstaklega ódýrt að fara á milli....

Skólinn er byrjaður og nóg að gera þar... styttist í að ég þurfi módel:)

Linda og Máni komu í borgina í vikunni og við fórum út að borða í boði elskulegs Böðvars sem var sárt saknað. Dásamlegt samt hvað þeir feðgar eru líkir svo það var einn lítill Böðvar með okkur:)

Við fórum á Askinn og fengum okkur kjúlla á sterum sem smakkaðist bara ljómandi vel... svo þegar við fórum að borga þá var Máni minn að telja "hólana" á afgreiðsluborðinu, sem btw var rosa erfitt, og var kominn uppí næstum 30 þegar að einhver karl bjáni fór að rugla hann og "telja með honum..." Máni fór í pínu hnút þegar hann náði að tufla hann og ósjálfrögð viðbrögð mín voru þau að ég barði mannin í öxlina og sagði honum hvað hann væri leiðinlegur.... roðn...  En karlinn varð pínu hissa á þessu held ég og endaði á því að gefa Mána pening fyrst hann var svona leiðinlegur:) hahaha...... Þetta var voða ljúft kvöld hjá okkur:)
Takk æðislega fyrir mig Linda mín og co...

Stefnan er svo bara tekin á rólega helgi, spurning um að kíkja eitthvað á jólagjafir áður en allt verður stappað í búðunum... held reyndar að ég sé orðin of sein í það svona um helgar....
Annars verða jólagjafirnar í ár frekar litlar, eða réttara sagt, MJÖG litlar þar sem ég er fátækur námsmaður... :) úfff..... en mottóið er ÞETTA REDDAST!

Knús og kossar og takk fyrir kvittin síðast....
Þórdís Dögg sem saknar þess að eiga heimili fyrir norðan....


Fríiđ búiđ...

10. nóvember 2008 klukkan 23:42
Ég er búin að vera fyrir norðan á minni fallegu Húsavík síðan á mánudaginn. Fór í lokapróf í snyrtifræðinni eftir hádegi og brunaði svo norður með Birgittu, Heiðrúnu og Þorgerði... Mikið var ljúft að klára prófin!!!

Við vorum komnar um kvöldið og þá biðu Líf og Sól eftir mér á hótel mömmu:) ekki amalegt:)
Daginn eftir fór ég svo og sótti litla settið mitt í leikskólann, sem ég hef ekki gert svo ótrúlega lengi, og fékk ekki slæmar móttökur þar:)

Það kom mér pínu á óvart hvað svona litlir og hversdagslegir hlutir skifta mann miklu máli.... eins og að sækja í leikskólann... ég var eins og lítið barn að bíða eftir jólunum þegar ég var að fara að sækja þau, ég hlakkaði svo til:)

Við vorum svo öll 5 á Baughólnum í viku og það var alveg dásamlegt að hafa þessi gull.

Linda Hrönn bauð okkur í mat í vikunni. Við brunuðum í sveitina til hennar að kíkja á bumbuna;) og karlana í fjölskyldunni:)
Við Linda mín höfum klárlega engu gleymt og það fannst mér snilld;) híhí...
Böðvar elskan strippaði fyrir mig eins og alltaf þegar ég kem og ég á ekkert von á því að hann hætti því neitt á næstunni:) Eins gott fyrir hann...

Ég skellti mér með litlu systur á Hvanndalsbræður á fimmtudagskvöldið (ekki samt í orðsins fyllstu) og knúsaði aumingja Val í bak og fyrir... því ég lofaði Thelmu og Tinnu að gera það, enda perlu vinir þar á ferð:) Þetta var alveg ljómandi kvöld og gaman að hitta staffið sem ég var með á Gamla Bauk í sumar... Hitti allavega suma af því....
Arnór krús átti afmæli þetta kvöld svo félagarnir voru að sjálfsögðu á tjúttinu:) Gaman að því....

Á föstudaginn fékk ég úr prófunum og gellan náði öllu:) Ekki lítið ánægð með það:)
Svo það er bara skólinn í fyrramálið kl.8.15 og allt af stað aftur....


Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.... endilega kvittið fyrir komuna... það eru ótrúlega margir sem kíkja hér inn en nenna ekki að kvitta...
Nema náttúrulega Linda mín;) hehe...

knús og kossar...:*






Frábćrt kvöld međ frábćru fólki...

01. nóvember 2008 klukkan 16:53

Ég var í "vaxpartý" í gærkvöld með dásamlegu fólki og algjörum kk hetjum:)
Vaxaði 3 kk og tók bringu, maga, bak, hendur, BIKINÍLÍNU og undir höndum... þetta var alveg magnað og voru herlegheitin tekin upp á cameru.... verðu klárlega horft á það í næsta partýWink
Takk æðislega fyrir frábært kvöld þið sem voruð með mér, verst að Sonja og Frosti þurftu að fara heim með litlu krúsluna og gátu því ekki verið með allan tímann, en það verður bara næstKiss

Ég er að fara í síðasta prófið á mánudaginn og svo verður brunað beint norður... og ég kem til með að stoppa í næstum viku takk fyrir kærlegaCool Get varla beðið eftir að komast heim og fá knús og kossa frá litlu gullmolunum mínum!!! Líf og Sól fá frí í skólanum til að vera hjá mér og við komum öll til með að gista hjá ömmu Siggu:) Hún er komin í svo fínt hús að það er nóg pláss og fer vel um alla:) Alltaf best að vera á hótel mömmu;)

En ætli það sé ekki best að koma sér í lærdóminn enn og aftur....Undecided þetta er alveg að hafast hjá mér.....

Á haus...

25. október 2008 klukkan 10:57
Það er ofsalega mikið að gera hjá mér þessa dagana, rétt búin að jafna mig á því að vera orðin 29 ára og þá byrjuðu prófin....
Verklega vikan er búin og bóklega vikan að byrja svo ég er bara að læra og læra... það eru ekki nema 7 próf í næstu viku hjá mér:s

Var fyrir norðan síðustu helgi og hjálpaði mömmu minni að flytja í nýja húsið sitt:) Ormarnir mínir voru að sjálfsögðu með í því og við gistum svo öll hjá mömmu um helgina.

Ég setti inn nokkrar myndir og ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... læralæralæralæralæralæra...

Knús og kossar...

ps. Ég er búin að sækja gjafabréfið Linda krús:) Kem norður 4.nóv og verð bara að fá að hitta þig eitthvað... orðið svaðalega langt síðan ég hef séð þig!!!

Skóli já og smá skóli...

07. október 2008 klukkan 16:52
*viðbót* setti inn nokkrar myndir*

Það er alveg hrúga að gera í skólanum og ég er alveg að fara að fá taugaáfall...Gráta en sem betur fer þá hef ég ekki tíma til þessHlæjandi haha....
Þessa viku þarf ég að redda mér 5 módelum og svo eru 2 próf.... annað er í smit og sótt og hitt er í snyrtifræði og er um húðina... er svaðalega stressuð yfir seinna prófinu...

Anný frænka kom í andlitsnudd til mín á mánudag og ég vil þakka henni fyrir það... Svo kom hún Eva Lind í brúðarförðun á mánudag og heilnudd á þriðjudag... á fimmtudag kemur hún svo í handsnyrtingu og aldrei að vita nema ég nái að spila með hana í vax á föstudaginn líka;) Hún er alveg að rúlla þessu upp með mér:)

Í dag fórum við svo á endurhæfingardeildina á Grensás og buðum upp á litun og plokkun eða handsnyrtingu... Það var æðislegt:) Það voru allir svo þakklátir fyrir það sem við vorum að gera og maður sá hvað maður hefur það gott sjálfur....
Þetta var verkefni í þjónustusiðfræði og ég væri sko alveg til í að gera þetta oftar!

En ætli þetta sé ekki gott í bili, koma mér í að læra...
 hafið það gott allir sem einn og þá sérstaklega sá sem er með góða lykt inni á baðherberginu sínu;) híhíhíhíhí.....

Thelma Líf og Tinna Sól takk fyrir að kvitta hjá mér:*  og auðvita þú líka Linda Hrönn(L)

Lífiđ getur veriđ svo ljúft:)

01. október 2008 klukkan 18:35
Síðasta fimmtudag fékk ég öll börnin mín í heimsókn:) Það var dásamleg tilfinning.....  hafa alla uppí, kúra saman, knúsa þau, spjalla við þau, hlusta á þau, hlusta á þau þræta, horfa á þau leika sér.... æ þetta var bara ljúft:)

Thelma Líf og Tinna Sól komu með flugi um hád. á fimmtudag og við skruppum í Kringluna og keyptum okkur allar föt úr barnadeildinni í Hagkaup... Peysa á mæðgurnar:) Um kvöldið fórum við í bíó á Mama mía... Þær var búið að langa að fara svo lengi og voru alveg í skýjunum með hana... sungu mikið með og tóm gleði hjá okkur. Við fórum svo heim, þær að sofa og ég beið eftir að litlu gullin mín Katrín Von og Garpur Loki kæmu. Þau komu svo að verða 2 um nóttina og svona líka glað vakandi:) Sváfu mest alla leiðina suður svo það var bara sest á gólfið, bindivélin sett aftan í New Holland og allt á fullt í heyskap;) híhí...

Föstudaginn fórum við svo í sundhöllinna og busluðum þar í góða stund. 40 litlir rúsínuputtar og tásur fóru þar næst í IKEA ásamt mér, Lísu og Gunnari. Þau fengu að fara í boltaland eða ævintýraland, hvað þetta heitir nú, og það fannst þeim ekki lítið gaman:) Við fórum svo til ömmu Siggu þegar hún var búin að funda eitthvað og borðuðum saman þar kvöldmat.

Morguninn eftir fór ég svo að gæsa eina af mínum bestu vinkonum og liðið var hjá Lísu og Gunnari á meðan.
Gæsunin fór þannig fram að við sóttum gæsina á skreyttri rútu og brunuðum með hana í adrenalíngarðinn þar sem allir fengu að reyna á sig andlega og líkamlega;) Við stóðum okkur eins og hetjur þar og lifðum allar af;)
Þetta tók um 3 tíma svo allir voru orðnir vel svangir svo leið okkar lá því næst í bústað tengdó gæsarinnar, sem er við Þingvallavatn, og úðað í sig geðveikt góðu lasagne.... 
Rútan beið okkar svo og við héldum af stað í átt til borgarinnar. Á leiðinni var stoppað, gæsin sett í froskalappir og snork og við fórum í pikknik útí hraunið... Breiddum þar úr sturtuhengjum og settumst með freyðivín. Þar gáfum við allar gæsinni lítinn persónulegan pakka sem hún var alveg í skýjunum með:) Vil taka það fram að veðrið var fáránlegt meðan við sátum þarna, grenjandi rigning og á tímabili var komið haglél en við gáfum okkur ekki með þetta og var ekki þurr þráður á okkur þegar við fórum til baka í rútuna;)
Þaðan var svo farið í heimahús og eldað og allir látnir græja sig eitthvað sætt. Borðuðum saman þrusu góðan mat sem hún Ásta eldaði og svo var farið á Mama mía singalong;) En ég ákvað að fara heim til barnanna frekar en að sjá þessa mynd í
3ja sinnið:)

Svo kom sunnudagur og börnin fóru heim.... mikið ofboðslega er alltaf erfitt að kveðja....:S 

En þetta voru æðislegir dagar:) Við sváfum öll saman í mínu rúmi og ath. það er 140cm á breidd;) híhíhíhíhíhí......
Svo á sunnudagskvöldið þegar ég lagðist uppí rúm og var bara ein, þá leið mér bara eins og krækiberi í helvíti:)

Skólinn er strembinn en alltaf jafn gaman hjá okkur:)  Mikið af prófum sem gengur svona mis vel í ....:)

Aðra helgi er ég svo að fara í brúðkaup og ekki verður það neitt leiðinlegt:) Allar vinkonurnar mæta og mikil spenna í loftinu:)

En nú er ég farin í læra, próf á morgun...

knús og kossar

ps:mér þætti rosa gaman ef þið nenntuð að kvitta;)

Nćturbrölllltttttt...

21. september 2008 klukkan 04:27
Góða nótt:)
Ég var að koma heim úr vinnu, Túpílakarnir voru að spila í kvöld svo það var slatti af Húsvíkingum.... Leið bara eins og ég væri á Gamla Bauk..:)

Á morgun er ég að fara í Smáralindina, sem er ekki frásögu færandi, nema það að ég er að fara að nudda hendur:)
Skólinn er með kynningu í tilefni af einhverjum heilsu og útlitsdögum... og við stelpurnar ætlum að gefa handanudd...:)
Held að það verði frekar spes, en gaman....

Ég er farin að hlakka alveg agalega mikið til næstu helgar því Líf og Sól eru að koma til mín á fimmtudaginn og verða fram á sunnudag:)  Það verður æðislegt!!!!!

Svo ef þið vitið um ferð norður einhverja helgina þá endilega látið mig vita ef ég get laumað mér með!

Ætla að fara að koma mér í háttinn, góða nótt:*

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur